|
Almenn erindi |
|
1 |
Kosning formanns og ritara. - Mál nr. 1101011 |
|
Guðrún stakk upp á Huldu Guðmundsdóttur sem formanni og S. Fjóla Benediktsdóttir sem ritara. |
|
Samþykkt samhljóða.
Hulda tók við stjórn fundarins. |
|
|
|
|
|
2 |
Önnur útgáfa staðardagskrá 21 - Mál nr. 1101012 |
|
Önnur útgáfa staðardagskrár 21 hefur ekki hlotið endanlega samþykkt á hreppsnefndarfundi, en hefur verið á vef hreppsins sem "drög". Farið yfir "drög" að annarri útgáfu st21 og hún uppfærð miðað við stöðuna í dag. |
|
Samþykkt að leggja aðra útgáfua af st21 fyrir hreppsnefndarfund. |
|
|
|
|
|
3 |
Fundartími nefndarinnar. - Mál nr. 1101013 |
|
Hulda lagði til að umhverfisnefnd fundi reglulega fyrsta mánudag annan hvern mánuð, næst 7. mars, til að nefndin geti fylgt eftir stefnumörkun ask og St21. Fundir og dagskrá skráðir í "atburðadagatal" á vef hreppsins. |
|
Samþykkt |
|
|
|
|
|
4 |
Samráðsfundur formanna sumarhúsafélaganna og hreppsnefndar. - Mál nr. 1101010 |
|
Samþykkt að ítreka við hreppsnefnd mikilvægi þess að samráðsfundir formanna sumarhúsafélaga og hreppsnefndar verði árlega og að þeir verði haldnir fyrir 20. apríl. |
|
|
|
|
|
|
|
5 |
Heildsteypt vöktun sbr. aðalskipulagstillögu. - Mál nr. 1101014 |
|
Í aðalskipulagi er áhersla á að unnin verði heildsteypt vöktunaráætlun yfir þá umhverfisþætti sem ætla má að geti verið mengunarvaldar. Tímasetja þarf slíkar rannsóknir, hvaða þætti eigi að mæla/skoða og hver beri ábyrgð á að rannsóknir og eftirlit fari fram.Hulda leggur til að umhverfisnefndin óski eftir fundi með Heilbrigðseftirliti Vesturlands og UST til að fara yfir áherslur. |
|
Samþykkt. |
|
|
|
|
|
6 |
Skorradalsvatn - Mál nr. 1101015 |
|
Samþykkt að leitað verði enn frekara samstarfs við OR um rannsóknir sbr. tillögur í skýrslunni "Áhrif vatnsmiðlunar á vatnalífríki Skorradalshrepps". |
|
|
|
|
|
7 |
Almannavarnir í Skorradal - Mál nr. 1101016 |
|
Í 3.5. kf. Brunavarnaáætlunar segir; "Nauðsynlegt er í framtíðinni að unnin verði áætlun um rýmingu frístundabyggða á svæðinu. Stefnt skal að gerð áætlunar í samráði við lögreglu, fulltrúa almannavarnadeildar Ríkislögreglustjóra og sveitarstjórna á svæðinu," Samþykkt að leggja til við Huldu, sem fulltrúa hreppsins í ABD, að hún beiti sér fyrir því að haldinverði almannavarnaæfing m.t.t. gróðurelda í Skorradalshreppi |
|
|
|
|
|
|
|
8 |
Menningarminjar í Skorradal - Mál nr. 1101017 |
|
Rætt hvernig megi "styðja við skráningu og vernd menningarsögulegra verðmæta" sbr. meginmarkmið hreppsnefndar í ask og framfylgja stefnu um "að semja skuli við fagaðila um skráningu fornleifa og menningarminja [...] og að almennt skuli fornleifaskráningu fyrir hreppin allan vera lokið árið 2015" (s. 72 í ask) Samþykkt að leitað verði tilboða hjá fagaðilum fornleifaskráningar. |
|
Huldu falið að leita tilboða sem síðan verða lögð fyrir hreppsnefnd. |
|
|
|
|