Fréttir
Sorphirðudagatal
	<description>Nýtt sorphirðudagl fyrir árið 2012 er komið inn á heimsíðuna undir síðuna sorphirða.</description>
Í minningu Sveins Skorra
	<description>Dagskrá á Fitjum í Skorradal 
laugardaginn 1. október 2011,  kl. 14 - 17
Snorrastofa og Bókmennta- og listfræðistofnun Háskóla Íslands efna til dagskrár um rithöfundinn og fræðimanninn Svein Skorra Höskuldsson. 
Efni dagskrár
Í foreldrahúsum 
Sigríður Höskuldsdóttir
Rithöfundurinn og fræðimaðurinn
Páll Valsson íslenskufræðingur
Upplestur úr Svipþingi eftir  Svein Skorra 
Þormóður Sveinsson
Af íslenskum Kapúlettum og Montögum, Rómeóum og Júlíum. 
Minningaþættir Sveins Skorra Höskuldssonar.
Ásta Kristín Benediktsdóttir
Myndir úr önnum dagsins, samstarfi og vináttu 
Jónas Kristjánsson fyrrv. forstöðumaður Árnastofnunar
Í heimsins hreggi. Svipmyndir af Sveini Skorra
Árni Björnsson þjóðháttafræðingur
Dagskrárstjóri   Bergljót S. Kristjánsdóttir prófessor
Aðgangseyrir kr. 1000 með kaffiveitingum</description>
EI LÍF Í FRAM-SKORRADAL
	<description>EI LÍF Í FRAM-SKORRADAL ? afmorsvísur og annað gott...  
Á haustjafndægri, n.k.föstud ( 23. sept.) fitja framdælingar í Fitjasókn og lengra komnir, upp á spaugsyrðum um sjálfa sig og aðra. Flestir eru raunar brottfluttir, en ganga aftur af þessu tilefni; í barndóm.
Fremstur í flokki er Helgi bóndi frá Háafelli/Snartarstöðum sem hendir fram stökum og Árgalir kveða rímur eftir Höskuld frá Vatnshorni, ef forlög og forfeður leyfa.
Hannes Blandon og Eiki Bó koma úr Eyjafirði og blúsa texta Hannesar við lög Cornelis Vreeswijk o.fl. um kirkjupólitík og stöku hjarðljóð. Afmorsvísur svo annað veifið...
Aðgangseyrir kr 1500 og frjáls framlög í Pakkhúsvinafélagið...
Ó-rafmögnuð hauststemning í Skemmunni á Fitjum</description>
Leitir og réttir
	<description>Nú fara í hönd  smalamennskur. Réttað verður í Hreppsrétt sunnudaginn 11.september kl. 10. En á laugardeginum verður smalað svæðið frá Litlu-Drageyri að austan og niður að dalinn að sunnan verðu. Einnig verður smalað í norðanverðum dalnum um helgina. En Oddsstaðarétt verður miðvikudaginn 14.september kl.9</description>
Laugardaginn 10. sept kl. 14 -16:30 verður haldið málþing á Fitjum um Guðmund Ólafsson
	<description>Guðmundur var fæddur að Setbergi við Hafnarfjörð árið 1825 . Hann var einn af best menntuðu búfræðingum sinnar tíðar; nam búfræði um fjögurra ára skeið í Danmörku og kom heim um 1850. Guðmundur varð áhrifamikill á því sviði, bæði sem ráðunautur og ...höfundur búfræðirita. Þá var hann um skeið alþingismaður Borgfirðinga, en hann bjó sín búskaparár í Borgarfirðinum, þar af síðustu 25 árin á Fitjum í Skorradal þar sem hann dreymdi um að koma á búnaðarskóla.</description>
Vígsla Pakkhúsins í Vatnshorni
	<description>Þann 13. ágúst verður Pakkhúsið í Vatnshorni vígt eftir endurgerð þess.
Athöfnin er einn af hápunktum viðburða á Alþjóðlegu ári skóga hér á landi, enda er um að ræða fyrsta húsið sem alviðað er íslensku timbri og er viðburðurinn því sögulegur sem slíkur. 
Skógrækt ríkisins gefur timbur frá Stálpastöðum í Skorradal til verksins, Stefán Ólafsson á Litlu-Brekku hefur veg og vanda af endursmíðinni og Unnsteinn Elíasson hleðslumeistari frá Ferjubakka sér um vegghleðslu undir húsið.
Félagsskapurinn ,,Vinir Pakkhússins" aflar fjár til verksins. 
Í tilefni af vígslu Pakkhússins koma norskir gestir frá Skogselskapet Bergen og Hordaland í Noregi til Íslands, m.a. Loftur Þór Jónsson fylkisskógameistari í
Hordalandi, ásamt Lars Sponheim fylkisstjóra   og verða viðstaddir vígsluna, en
Bjarni Bjarnarson frá Vatnshorni (síðar kenndur við Grafarholt) var við nám í jarðyrkjuskólanum í Stend í Hordalandi um 1880 og er talinn hafa flutt heim með sér norskt tilsniðið timbur til Pakkhússins.  
Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson mun afhjúpa hið endurgerða Pakkhús, sem fyrsta húsið alviðað úr íslenskum skógi. Svo skemmtilega vill til að afi Ólafs Ragnars, Kristgeir Jónsson bjó um um aldamótin 1900 í Bakkakoti sem er næsti bær við Vatnshorn og Grímur faðir hans fæddist þar, nokkru eftir að þetta elsta hús í hreppnum var upphaflega reist.</description>
Ljósmyndasýning Jóhanns Páls
	<description>Ljósmyndasýning Jóhanns Páls Valdimarssonar bókaútgefanda stendur nú yfir í gallerí Fjósakletti á Fitjum. Sýningin er opin milli 14 og 18 daglega, en lokað
mándaga og þriðjudaga.                Myndirnar eru allar teknar í Skorradal og
nágrenni og eru til sölu. Allur ágóði rennur til stuðnings endurbyggingar elsta hússins í Skorradal sem er pakkhúsið í Vatnshorni. Því húsi gerir Sveinn Skorri Höskuldsson  m.a. góð skil í bókinni Svipþingi. 
Í haust, 2. október er svo komið að málþinginu um Svein Skorra sem var á dagskrá í vor en þurfti að fresta. Málþingið er á vegum Snorrastofu og Háskóla Íslands. Nánar auglýst þegar nær dregur.
Á Fitjum er einnig sölusýning félaga í Félagi trérennismiða. Margt fallegra listmuna úr íslenskum efniviði í tilefni af alþjóðlegu ári skóga.</description>
Sól og blíða
	<description>Er ekki tilvalið að skella sér í sund í Hreppslaug í blíðunni sem er núna í Skorradalnum. Opnunartími Hreppslaugar er alla virka daga frá 15-22 og um helgar frá 12-22.</description>
Kaleikurinn kemur heim - þjóðhátíðardaginn 17.júní að Fitjum
	<description>Dagskráin kaleikurinn kemur heim  þjóðhátíðardaginn 17. júní að Fitjum
Kl. 14:00    
Dr. Vilhjálmur Örn Vilhjálmsson fornleifafræðingur kemur frá 
Danmörku til að fjalla um efnið: 
Hinn forni kaleikur Fitjakirkju - Saga, greining og hugleiðingar
Kl. 14:30     Ívar Þ. Björnsson leturgrafari sem gert hefur nýjan 
Fitjakaleik fjallar um gripina af sjónarhóli silfursmiðsins
Kl:15:00      Guðsþjónusta í Fitjakirkju - helgaður nýr Fitjakaleikur sem 
er gjöf frá kirkjubændum. Prestar: Flóki Kristinsson og Kristján Valur Ingólfsson.
Organisti: Steinunn Árnadóttir. Einsöngur: Bjarni Guðmundsson
Kl. 16:00 Kirkjukaffi að gömlum og góðum sið</description>
Hreppslaug opnuð
	<description>Búið er að opna Hreppslaug í Skorradal og er hún opinn alla virka daga frá 15-22 og laugardaga og sunnudaga 12-22. Hægt er að kaupa sundkort sem gildir í 10 skipti.</description>
Fyrirlestur Páls Theodórssonar
	<description>Fyrirlestur Páls Theodórssonar verður á Fitjum laugardaginn 4. júní kl. 14
"Hvenær hófst landnám?  - Hversu sannfróður var Ari fróði?Landnám Íslands hófst allt að tveimur öldum fyrr en talið hefur verið.Páll Theodórsson eðlisfræðingur hefur kafað í gögn fornleifafræðinga.Þrjár óskildar aðferðir til tímasetningar sanna eldra landnám:Kolefni-14 aldursgreiningar, örkolagreiningar og gjóskulög.Páll mun kynna sannanir fyrir eldra landnámi og mun einnig ræða nokkuð umútbreiðslu skóga á landnámstíð."Aðgangur 1000 kr á mann og kaffi/meðlæti innifalið</description>
Útifjör 2011
	<description>Björgunarsveitir í Borgarbyggð kynna Útifjör 2011 við Skorradalsvatn. Sunnudaginn 5. júní kl. 13</description>
Fyrirlestri um Svein Skorra FRESTAÐ
	<description>Dagskrá um Svein Skorra, nk. sunnudag 22. maí FRESTAST til haustsins af óviðráðanlegum ástæðum. Nánar auglýst þegar nær dregur.</description>
Sumarstarf-gagnaöflun vegna gróðurelda
	<description>Skorradalshreppur, með stuðningi Vinnumálastofnunar,  auglýsir eftir sumarstarfsmanni.  
Um er að ræða tveggja mánaða starf fyrir námsmann, eldri en 18. ára við heimildaöflun um alla gróðurelda sem skráðir hafa verið á Íslandi. Ekki er krafist sérþekkingar, en verkefnið útheimtir nákvæmi og þolinmæði. Vinnutímabil er frá 1. júní  til 1.ágúst, eða eftir samkomulagi. Samkvæmt reglum Vinnumálastofnunar þurfa umsækjendur að vera með heimilisfesti í Skorradalshreppi. 
Umsóknir ásamt staðfestingu um skólavist skulu póstlagðar til oddvita eigi síðar en 13. maí n.k. Oddviti Davíð Pétursson Grund Skorradal 311 Borgarnes</description>
Kjörfundur um þjóðaratkvæðagreiðslu
	<description>Kjörfundur vegna þjóðaratkvæðiagreiðslu um samþykkt eða synjun laga nr. 13/2011 fer fram laugardaginn 9.apríl 2011 í Skátaskálanum Skátafelli. 
Kjörstaður verður opnaður kl. 12.  
Kjörskrá liggur frammi hjá Oddvita Skorradalshrepps, Grund og á skrifstofu skipulags- og byggingafulltrúa Skorradalshrepps Hvanneyrargötu 3, Hvanneyri.
Kjörstjórn Skorradalshrepps</description>
Niðurfelling á svæðisskipulagi
	<description>Niðurfelling á svæðisskipulagi sveitarfélaganna norðan Skarðsheiðar 1997-2017 hefur tekið gildi. Sjá hér.</description>
Niðurfelling á svæðisskipulagi
	<description>Niðurstöðu samvinnunefndar um niðurfellingu á svæðisskipulagi sveitarfélaganna norðan Skarðsheiðar 1997-2017 er hægt að lesa hér með því ýta á linkinn 
niðurfelling svæðisskipulags.</description>
Athugasemdafrestur við Aðalskipulag Skorradalshrepp
	<description>Síðasti dagur til að gera athugasemdir við aðalskipulag Skorradalshrepp er fimmtudaginn 24. febrúar.</description>
Sorphirða
	<description>Búið er að gera nýja vefgrein vinstra megin um sorphirðu í sveitarfélaginu en þar er að finna sorphirðudagatal fyrir árið 2011. Sorphirðudagatalið á eingöngu við lögbýlin í sveitarfélaginu.</description>
Styrkir til atvinnumála kvenna
	<description>Þann 15.janúar var opnað fyrir umsóknir um styrki til atvinnumála kvenna.  Ráðherra velferðarmála veitir styrkina, sem veittir hafa verið ár hvert síðan 1991, en umsjón með styrkveitingum hefur  ráðgjafi Vinnumálastofnunar á Sauðárkróki.  Konur sem hafa góðar viðskiptahugmyndir eða reka fyrirtæki og eru að þróa nýjar vörur eða þjónustu, geta sótt um styrki sem geta numið allt að 2 milljónum króna. 
Fyrirtækið/verkefnið þarf að vera í eigu konu/kvenna amk 50% og þarf að vera nýnæmi/nýsköpun í hugmyndinni auk þess sem hún þarf að skapa atvinnu til frambúðar.  Ekki er skilyrði að vera með starfandi fyrirtæki. Hægt er að sækja um styrki til gerðar viðskiptaáætlunar (kr.300.000), styrki til markaðssetningar (innanlands eða erlendis), vöruþróunar , hönnunar eða efniskostnaðar.  Auk þess geta konur sem hafa nýlega stofnað fyrirtæki,  en hafa ekki hafið rekstur, eða eru að stofna fyrirtæki, sótt um styrk til að koma fyrirtækinu í framkvæmd (launastyrkur) og getur sá styrkur numið allt að 2 milljónum króna.  Með þeirri  umsókn þarf að fylgja fullgerð viðskiptaáætlun og er skilyrði að fyrirtækið hafi ekki hafið rekstur.  Hægt er að sækja um styrk fyrir allt að 50% af kostnaði verkefnis. 
Ekki er hægt að sækja um styrki vegna stofnkostnaðar, rekstrarkostnaðar eða framkvæmda.
Sótt er um rafrænt á heimasíðu verkefnisins  www.atvinnumalkvenna.is og er umsóknarfrestur frá og með 15.janúar til og með 7.febrúar. 
Nánari upplýsingar um reglur og umsóknir má finna á heimasíðunni og hjá Ásdísi Guðmundsdóttur í síma 582-4914.  
Einnig má senda fyrirspurnir í netfangið atvinnumalkvenna@atvinnumalkvenna.is</description>